Þjónusta

Google- og Meta-auglýsingar sem eru mældar

Við setjum upp og sjáum um auglýsingar á Google, Facebook og Instagram út frá markmiðum og markhópi fyrirtækisins. Við mælum fyrirspurnir og sölu, ekki bara smelli, og aukum aðeins það sem skilar sér.

Innifalið

Þetta færðu

Markhópar og uppsetning herferða
Hönnuð auglýsingaefni í réttum stærðum
Meta Pixel og Google Analytics settar upp
Eftirfylgni og bestun
Yfirlit á mannamáli í hverjum mánuði
Auglýsingareikningurinn er á þínu nafni

Verð

Pakkar og verð

Auglýsingaumsjón á einum miðli (Meta eða Google)
49.000 kr./mán.

Start

69.000 kr./mán.

Mánaðarleg umsjón

Fyrir hvern

Verslun eða þjónustufyrirtæki sem vill að fleiri finni það en hefur ekki tíma til að sinna miðlum og auglýsingum.

Við sjáum um

  • Auglýsingar á Facebook og Instagram
  • 4 hönnuð auglýsingaefni og bannerar á mánuði
  • 12 færslur á mánuði og story vikulega
  • Að Google sýni réttar upplýsingar um þig
  • Einfalt yfirlit í hverjum mánuði

Þú græðir

Þú þarft ekki að læra á auglýsingakerfin eða búa til efni á kvöldin. Í hverjum mánuði sérðu hvað var eytt, hve margir komu á vefinn og hve margar fyrirspurnir bárust.

Mælt með

Vöxtur

139.000 kr./mán.

Mánaðarleg umsjón

Fyrir hvern

Fyrirtæki sem vill vaxa og auglýsa bæði á Google og samfélagsmiðlum.

Við sjáum um

  • Allt í Start
  • Google-auglýsingar
  • 8 hönnuð auglýsingaefni á mánuði
  • Efni alla daga
  • Að vefurinn finnist á Google
  • Umsjón og breytingar á vef, allt að 2 klst. á mánuði
  • Mánaðarlegt yfirlit, og fundur ef þú vilt

Þú græðir

Eina markaðsdeild í stað þess að semja við auglýsingastofu, hönnuð og vefhönnuð sem tala ekki saman. Ein áætlun og einn tengiliður.

Stafræna deildin

229.000 kr./mán.

Mánaðarleg umsjón

Fyrir hvern

Fyrirtæki sem keyrir tilboð, árstíðir eða opnanir og vill hafa allt skipulagt fram í tímann.

Við sjáum um

  • Allt í Vexti
  • 12 hönnuð auglýsingaefni á mánuði
  • Stærri herferð á hverjum ársfjórðungi
  • Fréttabréf
  • Tvær greinar á vefinn á mánuði
  • Umsjón á vef, allt að 4 klst. á mánuði
  • Stefnumótun á hverjum ársfjórðungi

Þú græðir

Markaðsstjóra og hönnuð í einu, sem skipuleggja fram í tímann svo þú þurfir ekki að gera það.

Öll verð eru án VSK.

Auglýsingafé er ekki innifalið. Þú greiðir það beint á þinn eigin auglýsingareikning. Upphafsgjald 49.000 kr. (mælingar, stöðumat og áætlun) fellur niður ef þú kaupir vef- eða hönnunarpakka. Binding er 3 mánuðir og eftir það eins mánaðar uppsagnarfrestur.

Algengar spurningar

Það sem fólk spyr oftast.

Næsta skref

Segðu okkur hvert þú vilt fara.

Við byrjum á stuttu stöðumati og segjum þér hreinskilnislega hvað borgar sig. Þú færð skýrt tilboð — án skuldbindingar.