Þjónusta

Vefsíðugerð fyrir fyrirtæki

Við smíðum vefi sem eru gerðir til að fá fyrirspurnir, bókanir eða pantanir. Við skrifum textana, setjum allt upp og tengjum mælingar, Google-prófíl og samfélagsmiðla. Fast verð og ekkert óvænt.

Innifalið

Þetta færðu

Vefur sem virkar vel í síma og tölvu
Textar skrifaðir fyrir þig
Fyrirspurna- eða bókunarform
Grunnuppsetning fyrir Google (SEO) og mælingar
Tenging við Google-prófíl og samfélagsmiðla
Lénið og efnið eru þín eign

Verð

Pakkar og verð

Heimasíða

149.000 kr.

eða 29.900 kr./mán í 12 mánuði, án útborgunar.

Fyrir hvern

Fyrirtæki sem vantar góðan vef sem virkar vel í síma.

Við sjáum um

  • Allt að 5 síður
  • Bókunar- eða fyrirspurnaform
  • Textar, uppsetning og mælingar
  • Tengingar við Google-prófíl og samfélagsmiðla

Þú græðir

Góðan vef sem virkar vel í síma og auðveldar viðskiptavinum að bóka eða hafa samband.

Mælt með

Söluvefur

279.000 kr.

eða 44.900 kr./mán í 12 mánuði.

Fyrir hvern

Fyrirtæki sem vill vef og auglýsingar sem vinna saman að því að fá fyrirspurnir, bókanir eða pantanir.

Við sjáum um

  • Allt að 10 síður, auk síðu sem auglýsingarnar vísa á
  • Textar, uppsetning, mælingar og tengingar við Google-prófíl og samfélagsmiðla
  • Lógó og útlit
  • Fyrsta auglýsingaherferðin á Facebook og Instagram sett upp með 4 hönnuðum auglýsingum
  • Umsjón og breytingar fyrstu 3 mánuðina

Þú græðir

Vefurinn fær gesti frá fyrsta degi í stað þess að standa tómur.

Vefverslun

449.000 kr.

eða 59.900 kr./mán í 12 mánuði.

Fyrir hvern

Verslun sem vill selja vörur á netinu með greiðslum og sendingum á einum stað.

Við sjáum um

  • Shopify-verslun með allt að 100 vörum
  • Greiðslur, sendingar og lagalegar síður
  • Textar, uppsetning, mælingar og tengingar við Google-prófíl og samfélagsmiðla
  • Lógó og útlit
  • Vöruauglýsingar settar upp
  • Sjálfvirkir tölvupóstar þegar fólk skráir sig og þegar það skilur eftir körfu
  • Umsjón fyrstu 3 mánuðina og 1 klst. kennsla

Þú græðir

Verslun sem selur allan sólarhringinn, líka þegar búðin er lokuð.

Shopify-áskrift og öpp greiðir þú beint.

Öll verð eru án VSK.

Rekstur vefs (hýsing, SSL, DNS og eftirlit) er innifalinn í áskriftinni. Eftir 12 mánaða áskrift lækkar gjaldið í 14.900 kr./mán (Rekstur + allt að 1 klst. af breytingum) og vefurinn er að fullu greiddur. Ef vefurinn er greiddur í einu lagi kostar Rekstur 2.990 kr./mán, eða 14.900 kr./mán með allt að 1 klst. af breytingum. Sérhönnuð verslun er gerð eftir tilboði, frá 790.000 kr.

Svona verður vefurinn til

  1. 1

    Frítt stöðumat.

    Við förum yfir hvað vefurinn á að gera: fá fyrirspurnir, bókanir eða selja. Þú svarar nokkrum spurningum og við sendum þér skriflegt yfirlit.

  2. 2

    Tillaga og fast verð.

    Þú færð skriflega tillögu með verði og tímaáætlun. Ekkert óvænt.

  3. 3

    Smíði, þú samþykkir.

    Við skrifum textana, hönnum og setjum upp. Þú sérð vefinn áður en hann fer í loftið og getur beðið um breytingar.

  4. 4

    Í loftið og umsjón.

    Við tengjum mælingar, Google-prófíl og miðla, og sjáum um vefinn áfram ef þú vilt.

Algengar spurningar

Það sem fólk spyr oftast.

Næsta skref

Segðu okkur hvert þú vilt fara.

Við byrjum á stuttu stöðumati og segjum þér hreinskilnislega hvað borgar sig. Þú færð skýrt tilboð — án skuldbindingar.