Fyrir fyrirtæki
Nýr vefur sem skilar árangri.
Fyrir fyrirtæki sem taka bókanir og verslanir. Viðskiptavinir finna ykkur á Google og bóka eða hafa samband beint af vefnum. Við sjáum um stafrænu hliðina, þið sjáið um reksturinn.
Fast verð · Hægt að byrja án útborgunar · Þið eigið vefinn og lénið
Fyrir hverja
Fyrir þjónustufyrirtæki
Fyrirtæki sem taka bókanir
Hár- og rakarastofur, snyrting, neglur, fótaaðgerðir, nudd, sjúkra- og iðjuþjálfun, tannlæknar, sjón, sálfræði og ráðgjöf, ljósmyndarar, verkstæði, þrif, dýraþjónusta, hreyfing, afþreying og salaleiga.
Verslanir
Blómabúðir, gjafavöruverslanir og aðrar verslanir sem vilja sýna vörur, opnunartíma og staðsetningu. Viltu selja á netinu með greiðslum og sendingum? Þá hentar Vefverslun betur (sjá að neðan).
Innifalið
Hvað er innifalið
Allt sem fyrirtæki þarf til að vera sýnilegt og bókanlegt á netinu.
- Nýr vefur sniðinn að ykkar þjónustu, fallegur í síma og tölvu
- Bókunarhnappur tengdur því kerfi sem þið notið (t.d. Noona)
- Google-prófíll settur upp eða lagaður
- Facebook og Instagram samræmd
- Grunn-SEO svo vefurinn finnist á Google
- Meta Pixel og Google Analytics tengd frá fyrsta degi
Verð
Tvær leiðir, sami vefur
Þið veljið hvort þið greiðið strax eða byrjið án útborgunar. Vefurinn er sá sami — aðeins greiðslumátið er mismunandi.
Leið A · Greitt strax
Heimasíða
149.000 kr.
Greitt einu sinni.
- Svo 2.990 kr./mán. fyrir umsjón, öryggi og eftirlit
- Eða 14.900 kr./mán. með allt að klukkustund af breytingum á mánuði
Leið B · Ekkert í byrjun
Heimasíða í áskrift
29.900 kr./mán.
0 kr. í byrjun · 12 mánaða samningur.
- Allt í Heimasíðunni
- Umsjón, öryggi og uppfærslur
- Allt að klukkustund af breytingum á mánuði
- Einn tengiliður
- Eftir 12 mánuði lækkar gjaldið í 14.900 kr./mán. og vefurinn er þá að fullu greiddur og ykkar eign
Haustkjör til 30. nóvember: 20% afsláttur af Heimasíðunni (119.200 kr.), eða fyrstu þrír mánuðir áskriftar á hálfvirði.
Öll verð eru án VSK (24%). Lénið er skráð á ykkar nafn hjá ISNIC.
Heimasíða eða vefverslun?
Heimasíða — frá 149.000 kr. eða 29.900 kr./mán.
Kynnir fyrirtækið, þjónustuna og verð. Fólk bókar eða hefur samband. Engin greiðsla á vefnum.
Vefverslun — frá 449.000 kr. eða 59.900 kr./mán.
Shopify-verslun með allt að 100 vörum, greiðslum, sendingum og sjálfvirkum tölvupóstum. Fólk kaupir beint á vefnum.
Öll verð eru án VSK.
Ferlið
Hvernig þetta gengur fyrir sig
Yfirferð
Þið svarið nokkrum spurningum um hvað þið viljið sýna og hverjir viðskiptavinirnir eru. Við sendum ykkur skriflegt yfirlit með tillögum.
Efni
Þið sendið myndir og helstu upplýsingar, við skrifum textann og þið samþykkið.
Opnun
Vefurinn fer í loftið á ykkar léni, tengdur Google og miðlunum.
Umsjón
Við höldum vefnum við og breytum því sem þarf.
Fáðu frítt stöðumat
Frítt stöðumat: við skoðum vefinn, miðlana og auglýsingarnar og sendum þér skriflegt yfirlit með tillögum að næstu skrefum. Ef þú vilt frekar spjalla er síminn alltaf opinn. Skildu eftir nafn og netfang og við höfum samband. Tekur hálfa mínútu.
Næsta skref
Ekki viss hvort þetta hentar?
Bókaðu frítt stöðumat. Þú færð skýrt yfirlit og fast verð áður en nokkuð er ákveðið.