Þjónusta

Sýnileiki í AI-leit

Sífellt fleiri spyrja ChatGPT, Gemini, Claude eða Google í stað þess að fletta í gegnum leitarniðurstöður. Gervigreindin svarar með örfáum nöfnum. Við hjálpum fyrirtækinu þínu að vera rétt lýst og eiga betri möguleika á að vera nefnt.

Innifalið

Þetta færðu

Úttekt: við spyrjum ChatGPT, Gemini, Claude, Perplexity og Google sömu spurninga og viðskiptavinir þínir og skráum svörin
Skýr svör á vefnum við því sem fólk spyr um: þjónustu, verð, svæði og opnunartíma
Skipulögð gögn (schema) svo leitarvélar og gervigreind skilji hver þú ert og hvað þú býður
llms.txt og stillingar sem leyfa gervigreind að lesa vefinn
Samræmdar upplýsingar á Google-prófíl, já.is, 1819 og samfélagsmiðlum
Endurmæling eftir breytingar, svo þú sérð hvað breyttist

Verð

Pakkar og verð

AI-leitarúttekt (eitt skipti)
eftir tilboði
Lagfæringar á vef og skráningum
eftir tilboði
AI-sýnileiki í umsjón (mánaðarlega)
eftir tilboði

Öll verð eru án VSK.

Verð fer eftir umfangi og kemur fram í skriflegu tilboði eftir frítt stöðumat. Enginn getur lofað sæti í svörum gervigreindar, en við mælum stöðuna fyrir og eftir og segjum þér hreinskilnislega hvað breyttist.

Algengar spurningar

Það sem fólk spyr oftast.

Það er þegar fólk spyr gervigreind eins og ChatGPT, Gemini, Claude eða Google AI Overviews um vöru eða þjónustu og fær svar með nöfnum fyrirtækja. AI-leitarbestun, stundum kölluð GEO eða AEO, snýst um að fyrirtækið þitt sé rétt lýst og eigi möguleika á að vera nefnt í slíkum svörum.

Það byggir á sama grunni: góður vefur, skýrt efni og réttar upplýsingar. Munurinn er að gervigreind dregur saman upplýsingar frá mörgum stöðum, svo skýr svör, skipulögð gögn og samræmdar upplýsingar á Google-prófíl, já.is og öðrum skrám skipta enn meira máli.

Nei, og það getur enginn. Gervigreindin ræður svarinu sjálf og það breytist. Við getum lagað það sem er rangt eða vantar, mælt stöðuna fyrir og eftir og sýnt þér hvað breyttist.

Við setjum saman lista af spurningum sem viðskiptavinir þínir myndu spyrja, til dæmis „hver gerir vefsíður á Suðurlandi?“. Við spyrjum nokkrar gervigreindir, skráum hvort fyrirtækið er nefnt og hvort upplýsingarnar eru réttar, og endurtökum sömu spurningar eftir breytingar.

Nei. Við getum gert úttekt fyrir hvaða vef sem er. Lagfæringar á vefnum sjálfum eru einfaldastar ef hann er hjá okkur, annars vinnum við með þeim sem sér um hann.

Næsta skref

Segðu okkur hvert þú vilt fara.

Við byrjum á stuttu stöðumati og segjum þér hreinskilnislega hvað borgar sig. Þú færð skýrt tilboð — án skuldbindingar.